| Hulduheims Dalía og Miðnætur Hunting Artemis |
|
|
Dalía
Ég heiti Hulduheims Dalía, ég er Siberian Husky skvísa og kem frá Hulduheimsræktun, ég fæddist ásamt bræðrum mínum 6 þann 16 desember 2007
Foreldrar mínir eru bæði innflutt frá Kanada og heitir mamma mín Ebonyshadows Blowing on Bye - Icy og er kölluð Icy en hún er bæði kanadískur og Íslenskur meistari. Pabbi minn heitir Innisfree Copper Wolf og er kallaður Wolfie en hann er líka kanadískur meistari. |
|
|
Artemis
Ég heiti Miðnætur Hunting Artemis og ég fæddist ásamt fjórum systrum og einum bróður þann 11. ágúst 2009. Ég kom í heiminn rétt rúmlega 9 um morguninn og er yngst af systkinum mínum.
Mamma mín er innflutt frá Ástralíu og heitir Anyka Bootylicious Babe eða Kíra og er íslenskur meistari. Pabbi minn var sérstaklega fluttur til landsins frá Spáni til þess að búa mig og systkini mín til en hann fór svo aftur heim þegar við vorum komin í heiminn. Hann kemur frá mjög virtri ræktun í Ameríku. Hann heitir Karnovanda's Alexander Wolf eða Alex og hann er amerískur og íslenskur meistari. |
| Þú ert gestur nr. 8094 |